FROSTFOLDAR
19.10.2010 13:35:27 / lodlop

19.10.10

Jæja.

Nú er frekar langt síðan ég kom með fréttir af dýrunum.
En það er sko nóg búið að gerast hér á þessu ári.
Byrjum á Þoku.


Hulduheims Þoka er enn á Akureyri og stendur sig vel þar. Hún er búin í mjaðmamyndatökuni og augskoðuninni. En hún fékk flotta "dóma" þar, AA og Clear.
Einnig hefur stelpan lært nokkur ný trikk, t.d. að skríða.
Þoka verður sýnd á næstu sýningu og kemur hún því suður bráðlega.

Svo er það Mikki.
En Mikki er nýr hundur í fjölskylduni. Mikki er af tegundinni Poodle og er um 6 1/2 mánaða. Hann er undan Tátu og Ólíver, en Ólíver er 1/8 Papillon, svo er restin Poodle, Táta er hreynræktuð Poodle tík. Svo Mikki er 1/12 Papillon. En hann dafnar vel hér og líður bara mjög vel að ég held. Mjög fljótur að læra strákurinn. Um 2 mánaða aldur var hann búinn að læra "sestu", "leggstu" og "sæll". En nú um 6 mánaða aldurinn er hann búinn að læra "hæll", "nei", "gjörðu svo vel", "high fife", "twins" og "skríða". Svo hann er efnilegur rakki.

Svo er það hún Dimma. Dimma varð átta ára núna í Apríl s.l.
En það eru voðalega litlar fréttir af henni, þar sem hún er gömul og sefur bara mest allann daginn.

Cosmo er nýr í fjölskylduni. Ég hef reyndar átt hann frá því að hann var 5 vikna, en vinkona mín var með hann í smá tíma og kom hann til mín fyrir rúmum 2 vikum. Cosmo er mjög sérstakur köttur. Um leið og hann steg skref inn á heimilið fór hann beint til Mikka og lék við hann eins og þeir væru búnir að alast upp saman frá fæðingu. Cosmo hræðist mjög fátt.

Múska er komin aftur til mín og líður mjög vel.
Er með fáar fréttir af henni.

Nú, kindurnar, hrossið og kýrnar lifa bara sínu lífi fyrir norðan í sveitini.
Þruma er enn hjá Sissú og verður þar ásamt Aladín, syni sínum.

En nú hef ég ekki fl. fréttir, reyni að koma með meira bráðlega.


» 2 hafa sagt sína skoðun

16.04.2010 16:06:15 / lodlop

Sauðburðurinn hafinn.

Jæja. Þá eru kindurnar farnar af stað.
Drífa var fyrst til þess að koma litlu lambi í heiminn, og er það lítil hvít gimbur sem hlaut nafnið Barbara frá garði. En næst var það hún Yasmín (sashja) sem bar tveimur lömbum, hrúti og gimbur og hafa þau hlotið nöfnin Melkorka frá garði (hvít) og Emil frá garði (hvítur). Eftir Yasmín var það hún Kolla sem bar tveimur, þeim Von frá garði (gul) og Viðari frá garði (hvítur). Síðast en ekki síst var það hún Skakka sem bar tveimur hrútum, þeim Samáfóti frá garði (gulur með svartann fót) og Síró frá garði (gulur).

En við höfum enn þá slatta af rollum sem eiga eftir að bera og vona ég bara að það muni allt ganga vel. Ég kem með myndir seinna af lömbunum, en það eru komnar örfáar inn í myndaalbúmið af Barböru :).

» 0 hafa sagt sína skoðun

31.03.2010 17:04:51 / lodlop

Fréttir.

Jæja, þá er ég búin að gera síðuna upp.
Ég á eftir að koma með fl. myndir af dýrunum og setja inn fréttir seinna.
Endilega skoðið.

» 0 hafa sagt sína skoðun

08.03.2010 09:16:19 / lodlop

2010

Jæja, þá er árið 2010 komið.
Alveg þvílíkt langt síðan ég kom með blogg.

En ég vil byrja á því að óska afmælis dýrum ársins til hamingju.
- Draumabirtu Þruma (fædd 01.01.2009)
- Íshóla Múska Svört (fædd 03.03.2009).

En hér kemur smá blogg.

Hún Flækja er að nálgast þriggja mánaða aldurinn og dafnar hún alveg rosalega vel.
Feldurinn er æðislegur og loðinn, liturinn klikkar ekki og er hún alveg æðislega geðgóð.
Flækja er búin að læra að sitja kyrr, og kann hún næstum því að heilsa, en þó ekki alveg komið á hreynt hvernig það virkar, en Flækja er að nálgast 8 kg og verður því stór og sterkleg stelpa í framtíðini.

Hulduheims Þoka dafnar mjög vel einnig.
En hún er enn stödd á Akureyri í pössun og líður mjög vel þar.
Því miður komumst við ekki á sýninguna núna í Febrúar en ætlum við þó að mæta á nk sýningu og standa okkur. Þoka er orðin vel fit og flott í feldi og held ég því að við náum mjög góðum árangri. Einnig er hún að nálgast 30+ kg. Rosalega falleg stelpa.

Dimma er alltaf jafn flott á sér. En hún er að nálgast heilu 10 kg. og er því fit og flott.
Einnig er hún að nálgast 8 ára aldurinn, en það verður þann 17. Apríl.

Flicka Líf, hún er enn þá þessi litli kjáni bara. Hún verður 6 mánaða, 27 Mars nk.
En Flicka er strax byrjuð að breima um allt og er alveg að gera alla klikkaða :lol:, en það er bara eitthvað sem þarf að þola. Þegar hún fer svo í fyrsta árs aldurinn+ fær hún að hitta einhvern flottann högna. En Flicka er enn þessi kettlinga vargur og er því alveg enn í því að bíta og klóra. Ég klipti klærnar á henni í fyrsta skipti um daginn og er hún ekki enn búin að sættast við mig, hehe. Hún er sérsteklega fúl þar sem hún getur ekki klórað í sófann lengur.

En svo smá fréttir af sveitadýrunum.

Ég tók hana Vilmu að mér í stað Sölku þar sem Salka er orðin aðeins og stygg.
En Vilma, mín nýja kýr bar kálf í lok Febrúar, hann Smáfót sem lét svo lífið í fanginu mínu fyrir rúmri viku síðan. Einnig lést Köggull (kálfur) í fanginu á mér á svipuðum tíma.

Ísey er víst komin með hvolpa í mallakútinn sinn og á allt að gerast hjá henni í lok Apríl.
En Ísey var pöruð við högnann Frosta sem er grár að lit, rosalega fallegur og vona ég svo sannarlega að flottir litir komi undan þessu yndislega pari.

Svo er það hann Straumur sá eineygði. En hann lenti í smá slag við Gnára eða Krulla, er ekki alveg viss, en það fór frekar illa og er hann bara með eitt auga í dag. Hornið á Krulla eða Gnára hefur farið í augað og tekið það úr, en Straumur er sem betur fer alveg búinn að ná sér í dag ;) og líður bara nokkuð vel.

Drífa er enn þá sami grallarinn. En hún er komin með lítið/lítil lamb/lömb í malann, og finnst það bara semí vel. En hún er líklegast "ólétt" eftir hann Straum minn. En hún er enn þá þessi kelna kind og það eins og hún hefur verið frá því að henni var bjargað úr hrútshópnum fyrir rúmum 3 mánuðum.

Esja stækkar og stækkar og verður sífelt grárri og grárri, voðalega falleg og er ávalt til í klapp og burstun.

Þetta er lífið í dag og kem ég vonandi með fl. fréttir og myndir sem fyrst.
Takk takk.

» 0 hafa sagt sína skoðun

23.12.2009 17:44:19 / lodlop

Jólin á morgun.

Jæja þá er maður búinn að taka til á fullu, skúra og hreynsa allt saman.
Á aðeins eftir að þrífa búrið hjá Músku minni og skreyta það. Svo er ég einnig í vandræðum með hvað ég ætti að gefa Músku minni í jólagjöf. Hef ekki enn keypt neitt fyrir hana, geri það líklegast eftir jólin.

En hún Hulduheims Þoka fékk nagbein frá mér og harðfisksbita.
Hún var sko virkilega sátt með þá! Tók ekki augun af mér þann tíma sem ég var með henni, hún var svo ánægð.
Einnig fær Dimma harðfisksbita. Og get ég ekki ýmindað mér annað en að hún verði ánægð með það þar sem hún gersamlega elskar harðfisk.
Varðandi Flickyu Líf, þá er hún enn í sveitinni og verður þar um jólin.
En hún fær að kikja í heimsókn á hofsós og fær nóg af góðgæti þar.
Ég ætla svo að kaupa fína ól handa henni, bleika með demöntum, eða þá hvíta.
Svo að Flicka verður vel dekruð um jólin!
Drífa fær svo klippingu ! =). Einnig verður henni gefið nóg af brauði og harðfiski þar sem hún elskar það út af lífinu, og Straumur.
Ætli ég gefi svo Vírusi ekki það sama og kindunum !


Hvað gefið þið ykkar dýrum í jólagjöf? :)

» 0 hafa sagt sína skoðun

13.12.2009 01:06:12 / lodlop

12. Desember 2009

Smá fréttir hér úr sveitinni.

En hrútarnir þrír eru alltir farnir út á tún til gimbrana nema hann Straumur. Hann varð eftir inni hjá gemlingunum, m.a. Drífu.

Það var keyrt á hross hjá okkur um daginn og ekið í burtu svo við vitum ekki hver keyrði á það.
En hrossið var brúnt. Mjög gott. Hross sem allir gátu setið.
Rauða merin hjá okkur á nokkra bumbu daga eftir, semsagt folaldið fer að koma í heiminn.
Einnig erum við með tvær beljur sem eiga að bera núna fyrir jól, og eru svo sex beljur sem eiga að bera á milli jón og nýárs, svo eru þær einnig 6 sem eiga að bera í janúar og nokkrar í Febrúar. Svo það verður nóg að gera hjá okkur í fjósinu næstu vikurnar.

Við erum með dökk jarpann hest í tamningu og ætla ég að prufa hann á morgun.
Aðeins vanir geta setið hann þar sem hann er ekki full taminn, og er ég frekar óvön, en ég ætla að láta mig hafa það og prufa hann. Kem með myndir af því á morgun líklegast.

» 0 hafa sagt sína skoðun

27.11.2009 09:02:30 / lodlop

26.11.09

Þetta var nú meiri dagurinn..
Það byrjaði þannig að ég og Katrín, sem verður hjá okkur yfir helgina fórum í skólann.
Svo komum við heim og fengum okkur kaffi og kökur, tókum svo skóladótið saman og hlupum beinustu leið út í fjárhús. Þar sátumst við niður og fórum að læra.
Katrín lærði ensku en ég fór í Stærðfræðina.
Ég var búin með ca 12 dæmi, erfið dæmi er Dríva ákvað að koma og naga bókina mína!
Semsagt, ég þurfti að gera öll dæmin aftur.. hoho
En það var bara hlegið af því.  Dríva er sko ekki feimin / stygg kind.
Ég lá á grasinu/hey-inu og lærði, allt í einu fann ég þvílíkann þunga á mér og var Dríva þá að labba yfir mig, alveg æðisleg kind.

En svo fórum við í smá pásu, kiktum á hrútana og nautin, þeim leið öllum mjög vel.
Einnig fundum við hana Bollu og erum við nokkuð viss um að hún sé kettlingafull.
En við tókum einnig myndir og eru nokkrar þeirra komnar inn..
Restina set ég inn í dag.

» 0 hafa sagt sína skoðun

19.11.2009 12:24:22 / lodlop

Lagfæring.

Jæja, þá er ég búin að laga síðuna og fara yfir villur og fl.
Setja inn öll dýrin og taka út þau dýr sem ekki eiga heima á síðuni.

» 0 hafa sagt sína skoðun

30.10.2009 01:56:12 / lodlop

29 OKT.

Well well well..
What a day !

Í dag kom á heimilið lítill ferfætlingur sem er kominn til þess að vera.
En því miður fékk ég ekki þann gula. Eigendur höfðu ekki meira samband við mig.
En ok, ég fékk litla læðu, tuxedo að lit, alveg æðisleg. 7 vikna.

Hér eru myndir af henni.


Svo er hægt að sjá fl. uppl. um hana undir "önnur dýr" og linkinn þar "ónefnd"

» 0 hafa sagt sína skoðun

26.10.2009 19:41:39 / lodlop

Litli nýji ferfætlingurinn.

Á næstuni bætist lítill ferfætlingur við á heimilið, kettlingur, gulbröndóttur.
Alveg yndislegur.

Mynd af honum:


Hér eru svo nöfn sem koma til greyna mun ekki nefna hann fyrr en hann kemur á heimilið.

- Rojo (Rauður)
- Fresco (Kúl)
- Fernando
- a ladrar (að gelta)
- Blanco (Hvítur)
- Nariz (Nebbi)
- Amor (Ást)
- Mente (Hugur)
- Conejos (Kanína)

Svo fullt af fl.

» 1 hafa sagt sína skoðun

21.10.2009 01:17:43 / lodlop

19-20 okt.

Í gær fengu ungarnir að fara út í fyrsta skipti. Þeim leiddist það sko ekki.
Fengu að fara aðeins út í hraun í myndatöku og að bíta smá gras.
Reyni að fara með þá aftur á morgun þar sem þessi myndataka tókst ekkert sérlega vel.
Annars líður þeim vel að öllu öðru leiti, einnig Þrumu og Músku.
Hér eru orfáar myndir frá myndatökunni í gær, 19 Oktober 09.

Fl myndir er hægt að sjá hér: http://lodlop.blogcentral.is/sida/2392080/

Einnig er gaman að segja frá því að Múska er öll að fitna.
Sem þýðir að það styttist óðum í unga frá henni og Ólíver.
Endilega verið dugleg að kikja á síðuna okkar og kvitta.

Kv. Anika og kanínurnar.

» 0 hafa sagt sína skoðun

19.10.2009 17:53:17 / lodlop

5 Vikur.

Þá eru 5 vikur þangað til að ungarnir fari á nýju heimilin sín.
Eva, til hamingju með Ösku. Sissú, til hamingju með Aladín.

--

Nýjar myndir af ungunum undir linknum "Frostfoldar got 1 (A)"..

» 1 hafa sagt sína skoðun

15.10.2009 16:35:32 / lodlop

myndir af kanínunum.

Askja 


Aladín


Aska


Þruma


Múska

» 0 hafa sagt sína skoðun

15.10.2009 10:29:28 / lodlop

A got

Aska, Askja og Aladín eru nú orðin mánaðrgömul og stittist óðum í að þau Aska og Aladín fari á ný heimili. En Aladín fer til Sissú á Patreksfjörð en ég er ekki viss með Ösku.
Hún átti að fara í sveit rétt fyrir utan Sauðárkrók en þar sem ég er flutt þaðan til Reykjavík er ég ekki viss hvernig það verður. Vinkona mömmu minnar á hins vegar dóttir sem á eina kanínustelpu sem er frekar stygg og langar hana í aðra góða og datt mér þá í hug Aska. En Aska er mjög forvitin kanína og þykir ekkert betra en að láta kúrast með sig og klappa sér. Hún situr mjög gjarnan á öxlinni minni á meðan ég sinni mínum störfum á heimilinu. Askja, hún er mjög lík Ösku í skapi. En þó ekki jafn kelin. Aladín hefur verið frekar styggur undanfarið en er allur að koma til sem betur fer!

En svo vildi ég einnig deila því með ykkur að hann Ólíver, pabbi A gotsins kom í heimsókn um daginn og fékk aðeins að leika sér við Músku. Svo að Múska er líklegast ungafull núna, allavega eru spenarnir aðeins farnir að tútna út. Eins og gerðist fyrir hana Þrumu. Ég vona svo sannarlega að það gangi allt eins og í sögu, eða bara jafn vel og það hefur gengið með A gotið.

- Anika Lind

» 0 hafa sagt sína skoðun

19.09.2009 09:58:38 / lodlop

9 daga gamlir.

Ungarnir eru orðin 9 daga gamlir og dafna mjög svo vel.
Allir komnir með nöfn. Frostfoldar Aska, Frostfoldar Aladar og Frostfoldar Almera.
Almera verður mjög líklegast eins og Þrumu á litin, en er ég ekki viss með hin tvö.
Ég óska Úrsúlu innilega til hamingju með Aladar! Sem verður áfram í ræktuninni!

     - Almera                                  - Aska                                      - Aladar

» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3
Klukkan